Bláa spítalabakterían
Tækifærin í niðurskurðinum
Allt útlit er fyrir hatrömm átök um heilbrigðisþjónustu og skipulag hennar á næstu misserum. Stórfelldar skipulagsbreytingar heilbrigðisráðherra fara illa kynntar af stað og í miklu ósætti víða. Ásakanir um pólitískan klíkuskap eru settar fram af þunga.
Ritstjóri Smugunnar hefur hitt marga og ólíka mótmælendur við ýmis tækifæri eftir að íslenska efnahagskerfið hrundi, en líklega enga jafn reiða og starfsfólk St. Jósefsspítala í gær. Hópnum sem beið á skurðstofusloppunum eftir því að heilbrigðisráðherra kæmi út af fréttamannafundi þar sem uppskurður heilbrigðiskerfisins var kynntur , var stórlega misboðið.
Fólkið sem þar var samankomið telur sig hafa sinnt starfi sínu vel. Spítalinn var sérhæfður og reksturinn gekk betur en víða annarsstaðar. Í fyrra skilaði St. Jósefsspítali rekstrarafgangi og jók afköstin.
En er það ekki einmitt ástæðan fyrir því að spítalinn er sleginn af? Skemmtilegra er að einkavæða góðan rekstur en erfiðan. Í fréttatilkynningu ráðherrans segir að sérfræðingum og fagfólki sem hafa gert skurðaðgerðir verði boðin aðild að því að byggja upp skurðstofurekstur í nýrri aðstöðu á Suðurnesjum.
Þetta getur varla skilist nema á einn veg. Og því er mótmælt. En forstjórar sjúkrahúsa voru misupplitsdjarfir á blaðamannafundinum í gær. Þeir sem nú taka við auknum verkefnum og meiri ábyrgð voru hinir ánægðustu.
Enginn hreyfði mótmælum þegar Guðlaugur Þór heilbrigðisráðherra sagði að þjónustan yrði varin en ekki skert, þrátt fyrir sparnað upp á 1,3 milljarða. Smugan skilur ekki hvernig hægt er að halda þessu fram á sama tíma og starfsfólki er sagt upp, aldraðir fluttir af heimilum sínum inn á tveggja manna sjúkrahússtofur, skurðstofum lokað og heilir spítalar slegnir af. Og allir vita að heilbrigðiskerfið var í svelti fyrir. Þeir sem sjá tækifæri eða framfarir í svona hagræðingu líta því út fyrir að vera illa meðvirkir eða þungt haldnir af pólitískri pest.
Hatrammar deilur um heilbrigðisþjónustuna hljóta að vera það versta sem hægt er að bjóða upp á í kreppu. Stórfelldar kerfisbreytingar og sífelldar skipulagsbyltingar kosta líka skildinginn, einkum þegar þær eru unnar á handahlaupum og svo hratt að þeir sem málið snertir vita ekkert fyrr en eftir að öllu hefur verið snúið á hvolf.
Í sviptingum heilbrigðismála nú eru menn þó misvel upplýstir og nokkuð eftir pólitískum lit. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar var ekkert með í ráðum um stökkbreytingar í heilbrigðiskerfinu sínu bæjarfélagi. Reykjanesbær aftur á móti í svo góðri viðbragðstöðu að morguninn eftir að kynnt er uppbygging á nýjum skurðstofum þar, óskar bæjarráð efitr því að sveitarfélagið fái að taka yfir starfsemi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja! Er einhver blá baktería á ferð?

