Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Undir pilsfald Evu Joly

Ekki af sama sauðahúsi

4.8.2009 15:15

Bjorg_Eva_Erlendsdottir2

Á Eva Joly samleið með forystu Framsóknar og Sjálfstæðisflokks? Er hún að verja ofdekrað spillt Ísland sem neitar að bera ábyrgð á skuldum?

Eva Joly er okkar kona, jarmar sauðahjörð hrunflokkanna. Hún segir sannleikann. Sýnir fram á hvað stóru þjóðirnar eru vondar við saklausa Íslendinga. Annað en ráðherradruslurnar sem kyssa ESB-vöndinn og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn æ innilegar eftir hverja hýðingu.

Heldur sauðakór spillingarinnar virkilega að Eva Joly sé að mælast til þess að ábyrgðarmenn hrunsins sleppi? Eða mæla því bót að hlaupið sé frá skuldum og gerðum samningum? Já, eða fella dóm yfir ríkisstjórninni og icesavesamningnum?

Undarleg er sú túlkun ekki síður en svokallaðar fréttir hafðar eftir almannatenglum í verkefnaleit og stjórnarandstæðingum um að Eva Joly sé að gera það sem ríkisstjórnin hefði átt að leggja allan kraft í  að kynna vonlausa stöðu Íslendinga á erlendri grund.

Hér gleymist eitt atriði. En mikilvægt. Það er ekki sama hver talar. Orð Evu Joly eru sprottin af annarri rót og hafa annað gildi en orð Íslendings.  Grátkór  íslenskra ráðherra myndi varla vekja samúð viðsemjenda í útlöndum né gætu ráðherrar með góðri samvisku farið um víðan völl og lýst yfir gjaldþroti Íslands. Mat Evu Joly getur aftur móti orðið umhugsunarefni fleirum en þeim sem hafa áhyggjur af greiðslugetu Íslendinga.

Eva Joly hugsar í stærra samhengi en  íslenskir fjölmiðla- og stjórnmálamenn átta sig á. Hún er að fella dóm yfir hnattvæddu kerfi græðgi, spillingar og siðleysis og tekur Ísland sem erkidæmi um það hvernig slíkt kerfi getur sprungið framan í andlitið á sköpurum þess. Greinin er ákall til alþjóða samfélagsins um að gera upp við þetta kerfi í stað þess að láta eins og ekkert hafi í skorist.

Forystupar íslenskra ríkisstjórnar fór um víða veröld fyrir minna en ári til að dásama útrásina og íslenska banka. Trúverðugleiki þeirra varð núll. Ný andlit gömlu ríkisstjórnarflokkanna kveina nú undan heimskapítalismanum, stefnunni sem er þeim sjálfum svo kær. Trúverðugleiki þeirra er núll.  En pilsfaldakapítalistar þurfa alltaf skjól og aðra til að taka ábyrgð á sér. Nú er Eva Joly orðin þeirra skjól. Þá hlýtur að vera fokið í þau flest.   

Senda grein


Björg Eva Erlendsdóttir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica