Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Ríkisstjórn og engar refjar

Fyrsti dagur uppbyggingar er í dag

26.4.2009 16:09

Bjorg_Eva_Erlendsdottir2

Vinstri grænum og Samfylkingunni er nú treyst til þess að veita forystu stærsta og mikilvægasta verkefni  sem Íslendingar hafa þurft að leysa , að vinna upp velferð og virðingu djúpt sokkinnar þjóðar.   Það næst ef flokkarnir tveir mynda heiðarlega og vinnusama ríkisstjórn, sem verður sanngjörn,  lítillát og stundar ekki klæki.

Vinstri græn unnu stærsta kosningasigurinn, ásamt Borgarahreyfingunni.  En Samfylkingin vann stærsta sigurinn miðað við kannanir,  ásamt Framsókn.   Evrópusinnar unnu kosningarnar. Að sumu leyti má líkja úrslitunum við fyrri umferð Evrópukosninga, sem harðir andstæðingar ESB vildu halda til að minnka líkur á að til viðræðna kæmi.

Nú eru tvöföld  kosning úti. Þeir sem segja að þjóðin eigi að ráða,  verða að sætta sig við að sótt verði um aðild,  án þess að fara krókóttar  Fjallabaksleiðir. 

Dollar strax, sagði Sturla Jónsson,  og komst ekki spönn fyrir Frjálslynda.  Evru án ESB, sagði Bjarni Benediktsson Sjálfstæðisleiðtogi og fékk grautfúla útreið, svo notuð séu orð varaformannsins.  Enda var hvorutveggja bull.  Evrópa strax, sagði Samfylkingin og græddi á því.  Hvort það er bull vill almenningur fá að skera úr um.

Samfylkingin var hvorki kosin fyrir að vera óspillt og heiðarleg,  né fyrir góð áhrif  sín í ríkisstjórn Geirs. H. Haarde.   Hún var kosin fyrir beinharða stefnu í einu máli og fyrir vinnusama og vinstrisinnaða Jóhönnu Sigurðardóttur, sem alltaf tekur slaginn fyrir þá lakast settu sem ekki geta barist sjálfir.  

Stjórnmálamenn þurfa nú að muna til hvers ætlast er af þeim. Þeir sem skoruðu stig á Evrópusambandinu fá ekki meira út úr því.  Nú tekur alvara lífsins við.  Það verður fylgst með þeim og klækjastjórnmál verða ekki liðin.

Ríkisstjórnin Samfylkingar og Vinstri grænna á að starfa saman áfram og hún á að byggja upp velferðarþjóðfélag.  Samfylkingin á ekki að hóta því að fara með öðrum en Vinstri grænum í ríkisstjórn. Ágreining á að leysa með heilindum en ekki hótunum.  Samfylkingin á ekki heldur að setja þriðja hjólið Framsókn undir sinn ríkisstjórnarvagn, þótt Siv Friðleifsdóttir daðri.   Það væru klækjastjórnmál, enda á meirihlutinn vel að duga vilji menn á annað borð vinna saman.

Ríkisstjórnin á að segja þjóðinni sannleikann um erfiðleikana  framundan.  Hún á að halda áfram að uppræta spillingu og fletta ofan af óuppgerðu ráni og ranglæti. Hún á aldrei að reyna að hylja nein spor, enda mun það ekki takast.

Stjórnmálamenn götunnar  verða  á  vaktinni.  Loftbóluloforðum Sjálfstæðisflokkins um 20 þúsund álversstörf hefur verið hafnað.   Boði spillingarafla um að genga hreint til verks  í þágu almennings hefur líka verið hafnað.  Af sáttfýsi ákváðu kjósendur að trúa því að spillingunni hafi  verið úthýst úr tveimur fyrrverandi ríkisstjórnarflokkum.   Samfylkingin þarf  að sanna að þetta eigi við um hana og leiðtogar beggja flokka þurfa að semja um vinnulag ríkisstjórnar af heilindum og án hótana eða undanbragða.

 

Senda grein


Björg Eva Erlendsdóttir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica