Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Hetjur hins vinnandi manns

Sérkennileg verkalýðsbarátta

25.3.2009 18:55

Bjorg_Eva_Erlendsdottir

Alþýðusamband Íslands fer óhefðbundnar leiðir í baráttu sinni fyrir alþýðu þessa lands. Fyrir utan að sparka einni Framsóknarkonu sem fór í  framboð,  finnst forseta ASÍ nú brýnast að berjast af alefli gegn launahækkunum umbjóðenda sinna. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem grunur vaknar um að forysta ASÍ telji sig vera einskonar útibú frá ríkisstjórninni eða undirdeild í Samtökum atvinnulífsins.

Predikanir Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins renna meira eða minna saman í eitt í höfðinu á venjulegum launaþræl og boðskapurinn er alltaf sá sami. VIÐ verðum að taka ábyrgð á því að hjól atvinnulífsins stöðvist ekki,  fyrirtækin beri sig og verðbólgan fari ekki upp úr öllu valdi.  Ríkisreksturinn má ekki fara úr böndum. Ríkisstarfsmenn eru of margir og laun þeirra mega aldrei hækka meira en í almennum samningum.

Hver man ekki eftir því þegar aðstoðarfólk á leikskólum var næstum því búið að setja þjóðfélagið á hausinn?  Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri fékk skömm í hattinn fyrir þessa ótímabæru launahækkun,  sem strax þótti líkleg til að hrinda af stað hinu stórhættulega launaskriði sem aftur myndi hleypa af verðbólguskoti.

Trúverðugur verkalýðsforingi verður að geta haldið þrumandi og sannfærandi ræður um óréttláta atvinnurekendur og misrétti þeirra í garð launþega  á tyllidögum sem öðrum dögum.  En verkalýðsleiðtogar sem hafa bundist auðvaldinu tryggðaböndum til þess að fá að vera memm  þegar kökunni er skipt,  geta ekki verið of fúlir við samstarfsmenn sína.

Forysta Alþýðusambandsins fann því óvininn í sérréttindaliðinu á ríkisjötunni, sjúkraliðum og kennurum og þessháttar forréttindahópum.  Þannig varð stéttabarátta ASÍ til þess að byggja upp gagnkvæma tortryggni og öfund á milli lágstéttarhópa.

Forystumaður sem er  öflugur og vel launaður þáttakandi í íslenskri pólitík og valdastrúktúr getur samt lent í kviksyndi.  Það fékk Páll Gunnar Pálsson fyrrverandi formaður VR að reyna.   Nú má spyrja hvað verður um forseta ASÍ og hans líka,  þegar samhengið er orðið öllum ljóst.

Stórkapítalistar íslensks atvinnurekstrar hafa eflaust margoft skellihlegið að hinum samstarfsfúsu verkalýðshetjum sem léttar í spori gengu erinda þeirra ár og síð.  Á meðan gátu atvinnurekendur einbeitt sér að því að tæma allan arð út úr fyrirtækjunum, fela laun stjórnenda, láta vini sína í ríkisstjórninni lækka á sig skatta og stinga loks af til Tortola með restina.

Senda grein


Björg Eva Erlendsdóttir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica