Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Tvö, þrjú, fjögurþúsund störf

Fyrsta, annað og þriðja boð!

4.3.2009 19:50

Bjorg_Eva_Erlendsdottir

Aðdragandi kosninga er jafnan sá tími þar sem miklu er lofað.   Margt af því er fljótlega svikið.  Árið 2009 virðist ekki verða nein undantekning frá því að stjórnmálamenn  segja það sem fólk vill helst heyra.  Staðreyndirnar verða svo einhvernveginn.   er  lofað störfum sem getur verið erfitt og ótrúverðugt  við ríkjandi aðstæður.

Ástæða er til að óttast að störf í tengslum við Helguvík séu slíkt loforð.  Í fréttum er klifað á því að allt að þrjúþúsund störf verði til á næstunni.   Innistæðan  fyrir því er jafn ótraust og hlutabréfamarkaðurinn fyrir hrun.

RÚV sagði í dag að á árunum  2010 til 2015 verði  800 til 1200 manns að störfum við byggingu álversins. Fjöldi starfa nái hámarki árið 2011 þegar 1200 til 1500 manns verði við störf. Allt að að 2500 til 3000 manns verði við störf í verkefnum tengdum byggingu álversins í Helguvík. Vegna þessara framtíðardrauma lá iðnaðarráðherra lífið á að koma fjárfestingarsamningi vegna byggingar og reksturs álvers í Helguvík, gegnum ríkisstjórnina og gekk það eftir.  En nú er eftir að samþykkja lagafrumvarp í þinginu.

Kolbrún Halldórsdóttir, umhverfisráðherra ætlar að greiða atkvæði gegn frumvarpinu um Helguvík og standa við stefnu sína. Mörður Árnason hefur líka tekið einarða afstöðu., en óvíst er hvort varaþingmaðurinn verður inni á þingi við atkvæðagreiðslu um frumvarpið. Vafningar eru á öðrum grænum þingmönnum. Þingmenn Vinstri grænna, sem sjaldan liggja á skoðunum sínum, ætla ekki að styðja málið, en  treysta sér ekki til að gefa upp hvort þeir greiða atkvæði gegn frumvarpinu. Um afstöðu sumra grænna þingmanna Samfylkingarinnar fer færri sögum, en þeir hafa þó kallað álverið happafeng.

Það er ekki til vinsælda fallið að tala niður neitt sem getur fært fólki vonir um störf á tímum atvinnuleysis. En það er beinlínis illa gert að lofa upp í ermina á sér rétt fyrir kosningar, störfum við framkvæmdir sem óvíst er að hefjist.

Hafi Smugan eitthvað fyrir sér er fjármögnun álvers í Helguvík mjög ótrygg. Álframleiðsla er allsstaðar í heiminum að dragast mikið saman. Ef það er hagkvæmt að byggja álver hér á sama tíma og þúsundum starfsfólks er sagt upp víða um heim og tugum álvera lokað, hlýtur eitthvað að vera bogið við samningana sem hér eru gerðir.

Össur Skarphéðinsson, iðnaðaráðherra, bætti  enn  í  loforðaflauminn vegna fjárfestingasamningsins um Helguvík í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. Nú voru ársverkin orðin 4000. Ætli þau verði ekki 20 þúsund á morgun! Og Ríkisútvarpið setur ekki eitt einasta spurningarmerki við þennan sívaxandi fjölda starfa við álver sem einhverra hluta vegna verður að semja við fyrir kosningarnar í vor. Og það þótt fjármögnun Century Aluminium á verkefninu sé  í fullkominni óvissu og öllum frekari framkvæmdum álfyriritækisins hafi verið frestað.

Senda grein


Björg Eva Erlendsdóttir

Þetta vefsvæði byggir á Eplica