Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Þjóðstjórn um Gamla Ísland

21.6.2010 0:37 Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

thora-kristin

Það að forystumaður í Samfylkingunni skuli gefa hugmynd um þjóðstjórn byr undur báða vængi við núverandi aðstæður bendir til uppgjafar félagshyggjuaflanna gagnvart því verkefni að stýra þjóðarskútunni gegnum þær þrengingar sem eru framundan. Það eru vissulega ömurleg verkefni sem hafa verið á borði ríkisstjórnarinnar, gríðarlegur niðurskurður, nánast uppskurður á á velferðarkerfinu. Icesave-málið - ógeðsdrykkur sem hlýtur að vera nánast eitur fyrir vinstri stjórn, þótt einungis sé horft á málið út frá sjónarhóli almannatengsla. Heimilin undir hamri fjármálafyrirtækja sem eru að rísa úr öskustónni með aðstoð ríkissjóðs, Magma-Energy,  auðmenn á flótta í erlendum stórborgum, með þóttasvip og skara af lögfræðingum.

Pólitískt upplausn, nánast fasísk umræða á stundum, krafa um sjónhverfingar og skyndilausnir eða tafarlausa uppgjöf.

Það er ómælishaf milli þeirra sem eru lengst til vinstri og þeirra sem eru lengst til hægri í liði þeirra sem stutt hafa þessa ríkisstjórn. Ráðherrarnir hafa dansað á línu einhverstaðar á miðjunni og fengið bágt fyrir.

Það er pólitískur barnaskapur að ætla að þessi uppgjöf sem felst í hugmyndinni um þjóðstjórn eigi bara rætur sínar að rekja til óeiningar innan VG vegna Icesave-mála, Evrópusambandsins eða annars. Það er líka gríðarleg óeining innan Samfylkingarinnar og mismunandi fylkingar flokksins eru ekki sammála hvort  eigi að horfa til hægri eða vinstri. Hugmyndir um þjóðstjórn þjóna þeim sem vilja horfa eingöngu til hægri.

Niðurstaða Framsóknarflokksins í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum er túlkuð á mismunandi vegu, annars vegar sjá menn að verið sé að refsa flokknum fyrir stjórnarsamstarfið með Sjálfstæðisflokknum og aðgerðir sem leiddu til hrunsins, hinsvegar sjá menn að oddviti flokksins hafi gengið gegn hægri öflunum í flokknum, en Óskar Bergsson var tvímælalaust fulltrúi þeirra og þess vegna fengið afgerandi skell. Það virðist því sem breiðfylking framsóknarmanna, ef það er þá yfirhöfuð hægt að tala um slíkt, sé alls ekki samstíga í því að breyta flokknum aftur í félagshyggjuflokk.

Klofningurinn innan Sjálfstæðisflokksins blasir við öllum sem fylgjast með íslenskri pólitík.

Það væri eflaust hægt að mynda þjóðstjórn um ýmsar áherslur þessarar ríkisstjórnar og skapa þannig vinnufrið. Þær áherslur miða einkum að því að endureisa úr rústum efnahagshrunsins þær stofnanir sem fyrir voru í nánast óbreyttri mynd.

Annað yrði þá útundan. Til að mynda að vernda auðlindir landsins. Að reyna að dreifa byrðunum sem jafnast og nota til þess skattkerfið fremur en að mylja niður menntakerfið og velferðarkerfið og reka konur úr umönnunarstörfum inn á heimilin til að passa börnin og annast sjúklinga án þess að greiðsla komi fyrir.

Össur Skarphéðinsson nefnir Icesave-málið og þverpólitíska vinnu vegna þess sem röksemd fyrir þjóðstjórn. Þingið var að störfum heilt sumar og vissulega var það aðdáunarverð tilraun sem var leidd af Ögmundi Jónassyni, Lilju Mósesdóttur og Guðfríði Lilju Grétarsdóttur öðrum fremur. En niðurstaðan var sú að sjálfstæðismenn sátu hjá þegar fyrirvararnir við Icesave-samninginn voru afgreiddir og treystu sér því ekki til að fylgja úr hlaði, með atkvæði sínu. vinnu sem þeir sjálfir hrósuðu sér þó af. Við þekkjum öll framhaldið.

Icesave-málið er enn óleyst, þarf að minna á það?

Hér er ekki fullyrt að ríkisstjórnin hafi ávallt staðið sig vel en lausnin er ekki að gefa þá málaflokka algerlega uppá bátinn sem hafa verið helsta röksemdin fyrir lífi hennar.

Senda grein

Athugasemdir (6)

  1. Jón Jón Jónsson skrifar:

    Enn á ný skörp greining Þóru Kristínar á vanda fjórflokksins: Þeir eru svo daprir að Össur býður miðju-moð-reyk og ætlar sér þar sess ... án vafa.
    Þeir ætla sér allir sess þar ... til að hylma yfir áhugaleysið á hugmyndfræðilegum átökum ... enda allt svo háttvirt og hæstvirt í samtryggingu flokkanna.

    \"Annað yrði þá útundan. Til að mynda að vernda auðlindir landsins. Að reyna að dreifa byrðunum sem jafnast og nota til þess skattkerfið fremur en að mylja niður menntakerfið og velferðarkerfið og reka konur úr umönnunarstörfum inn á heimilin til að passa börnin og annast sjúklinga án þess að greiðsla komi fyrir.\" (ÞKÁ)

    Verði þetta arfleifð \"fyrstu tveggja flokka og hreinræktuðu vinstri stjórninni\" þá er það orðið endanlega ljóst að þeir tveir flokkar sem að henni standa þurfa alvarlega að skoða sinn gang ... til hvers eru þeir eiginlega í pólitík? ... bara til að svamla um í miðju-moð-reyk ... án allra átaka? ... af því þeir eru safn af hæstvirtum, háttvirtum í lífsstíl gunga, kveifa og trénaðra í heila-búunum. Hvenær verður UPPREISN þess sauðþráa skósveins og rótara fyrir AGS? Uppreisn gegn honum sjálfum? ... nei, VEI, VEI, hann getur ekki farið í sjálfskoðun sá maður ... Steingrímur þú ert geimóver.

    Það yrði Vg til framdráttar að Steingrímur (sá sauðþrái) segði af sér og Vg kysi sér nýjan formann (ég tel Ásmund efnilegan ... og skemmtilega skapmikinn ... ólíkt luðrunum sem hengslast utan í AGS og ESB).

    Hr. silfurskeið og bekktelska ál-frúin eru ekki líkleg til að blása lífi í Sjfl.
    Sú björgunaraðgerð mun kalla fram uppsölu á fjöldasamkundunni.

    Og Samfylkingin stendur frammi fyrir því að akta sem kapítalískir júró-kratar, eða tjalda gömlu dulunni \"eðal-kratar\" ... af ástríðu (sic!)
    Að röfla nú um þjóðstjórn, segir allt sem segja þarf um flaðrandi malið í Össuri ... hér eftir sem hingað til.

    Um framsókn segir Þóra Kristín allt sem segja þarf.

    Gleymum því ekki að flestir í fjórflokka-þingliðinu tróðu sér þangað meir af kappi en forsjá ... enda engar hugsjónir með í farteskinu? ... bara sitja þar í miðju-moðs-reyk?
    Á bullandi launum og í eilífa hópeflinu ... erum við ekki öll svo hæstvirt og háttvirt?

    Þetta er brjóstumkennanlegt aula-bárða-lið. Það er eitthvað mikið að.

    Það heitir tossa-bandalag viðhlæjendanna taugaveikluðu og sauðþráu.

    21.6.2010, kl. 3:42 | #

  2. Pétur Örn Björnsson skrifar:

    \"Icesave málið er enn óleyst, þarf að minna á það?\"(Þ.K.Á.)

    Minnir mig á STÓRU BOMBU spurninguna:

    Fáum við ekki bráðum ... Íspistil nr. 4 ... frá Indriða H. Þorlákssyni?

    Svavar Gestsson getur kannski stungið niður penna líka ... eða hvað?
    \"Um ísfrystingu á þjóð-ar-vilja ... og hvernig má níða þjóð sína með hjálp samfylkingar-prófessora\" væri fyrirsögn í stíl við vilja þeirra ... eða hvað?

    Steingrímur og Jóhanna eru tunguskorin og geta engu svarað án meistara sinna. Og Össur ... er hann í Rússíá eða í Kína núna ... kannski með ÓRG?

    22.6.2010, kl. 2:02 | #

  3. Ragnheiður skrifar:

    Góður pistill. Segir allt sem segja þarf.

    22.6.2010, kl. 12:55 | #

  4. Guðrún Haraldsdóttir skrifar:

    Hugmynd um þjóðstjórn er ekki bara arfavitlaus og vond, heldur bein svik við kjósendur. Kjósendur vildu koma Sjálfstæðisflokknum frá völdum og Framsókn líka.

    Eina þjóðstjórnin sem hægt er að mynda er um meira af gamalli spillingu, meira af gamaldags stóriðju, meira af gamaldags klíkuskap fyrir fleiri, meira af bitlingum handa flokkshundum og almennt meira af öllu því sem við vildum losna við.

    Ef mynduð verður þjóðstjórn, þá fyrst er hægt að tala um fjórflokkinn. Kæra vinstri stjórn, hættu þessu bulli og reyndu að standa í lappirnar - sem sú vinsti stjórn sem við kusum. Sammála Þóru Kristínu, sem gæti þó tekið sterkar til orðar og spurt eftirfarandi spurninga:

    Eruð þið kolvitlaus, sem viljið fá þjóðstjórn, með þáttöku allra gömlu skúrkana. Er ekki nóg að þið af heigulshætti setjið á hvern einasta gamla spillta embættismann úr fyrrverandi valdakerfi? Er ekki nóg að þið af heigulskap bjóðið endalaust samstarf við skúrka um endurreisn banka, fjölmiðla og stórfyrirtækja?

    Takið ykkur á og reynið að verða sú vinstri stjórn sem lofað var. Þið eruð að komast fram yfir síðasta söludag og þeir sem vilja þjóðstjórn ættu bara að drífa sig í stjórnarnandstöðuna með formönnum Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Trúverðugleiki þeirra er líkur ykkar, ef þetta eru mennirnir og flokkarnir sem þið viljið starfa með!

    22.6.2010, kl. 18:54 | #

  5. Sveinn skrifar:

    Góð grein

    22.6.2010, kl. 18:58 | #

  6. Pétur Örn Björnsson skrifar:

    Heyr, heyr! Vel mælt Guðrún Haraldsdóttir!

    22.6.2010, kl. 20:16 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Frá ritstjórn

Þetta vefsvæði byggir á Eplica