Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Virðing þingsins

15.6.2010 19:37 Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

thora-kristin

Það er átakanlegt að heyra þingmenn spyrja sig aftur og aftur, afhverju fólk sé hætt að bera virðingu fyrir Alþingi. Fjölmiðlamenn ræða við þingmenn um svörin og aftur og aftur er sama platan leikin og sama kunnuglega stefið hljómar. Og virðingin þverr.

Einhvernveginn finnst mér eins og stjórnmálamennirnir séu ekki rétta fólkið til að ræða við um hvernig megi endurreisa virðingu Alþingis. Með fullri virðingu þá bendir það bara hvert á annað og skammar ríkisstjórnina eða stjórnarandstöðuna.

Það er fátt nýtt í því.

Það er líka klisja að tala um gjá milli þings og þjóðar, samt er það staðreynd. Fulltrúar okkar inni á þingi eru ekki að tala sig inn í hjarta þjóðarinnar þessa dagana. Og sjaldnast.

Núna hefur náðst samkomulag um þinglok, þingmenn hlaupa glaðir út í sumarið, fram undan er lengra frí en aðrir eiga kost á, sem á annað borð hafa vinnu.

Eftir liggja vatnalögin illræmdu, þeim verður frestað aftur í stað þess að gera þjóðinni þann greiða að afnema þau. Afhverju?

Það er ekki tæknilegt atriði að afnema vatnalögin frá 2006. Það er gríðarlegt réttlætismál. Það er yfirlýsing um að við höfum lært af reynslunni og að við ætlum ekki að dýpka enn frekar gjána milli þeirra sem hafa tekið sér eignarrétt á gæðum landsins og sumpart skilið þau eftir sem rjúkandi rúst og hinna sem virðast eiga að borga brúsann.

Það er vissulega hægt að fresta gildistöku vatnalaga til þess að komast fyrr í sumarfrí. En það eykur ekki á virðingu þingsins þvert á móti.

Það er uppgjöf gagnvart hugmyndafræði sem setti landið á hliðina.

Í vatnalögunum lifir hugmyndafræði frjálshyggjunnar um að það sé hægt að einkavæða öll gæði, setja á þau verðmiða og braska með á markaði með skelfilegum afleiðingum fyrir afkomendur. Stjórnmálamenn  eiga ekki að slá slíkum málum á frest.

Það vantar málefnalega rökræðu um hvaða lærdóm við ætlum að draga af þessu hruni. Þar er sóknarfæri fyrir stjórnmálamenn vilji þeir endurheimta virðingu sína.

Framundan er gríðarlegur niðurskurður í velferðarkerfinu, niðurskurður sem mun bitna verst á þeim sem minnst hafa. Skuldarar hafa líka tekið á sig miklar byrðar.

Réttlætinu verður ekki fullnægt eingöngu með því að einhverjir verði dregnir fyrir dómstóla. Fólk verður að sjá þess merki að það eigi ekki að vinda það eins og tuskur til þess eins að byggja upp sambærilegt kerfi og var við lýði fyrir hrun.

Stjórnmálin verða að fara snúast um hugmyndafræði, það er ekki nóg að slá bara frjálshyggjunni á frest, fram yfir kreppu.

 

Senda grein

Athugasemdir (11)

  1. Rakel Sigurgeirsdóttir skrifar:

    Stórkostleg grein hjá Þóru Kristínu!

    16.6.2010, kl. 0:18 | #

  2. Jóhanna skrifar:

    Frestun afnáms vatnalaga er ekki bara sorgleg heldur líka alveg óskiljanleg. En allt má gera fyrir gott og langt sumarfrí!!

    16.6.2010, kl. 6:56 | #

  3. Lárus skrifar:

    Mjög góð grein.

    16.6.2010, kl. 8:44 | #

  4. Elín Sigurðardóttir skrifar:

    Frábær grein. Tek undir hvert orð.

    16.6.2010, kl. 8:58 | #

  5. María Kristjánsdóttir skrifar:

    Vonandi verður þessi góða grein rædd á flokkráðsfundi VG.

    16.6.2010, kl. 16:14 | #

  6. Jóhann skrifar:

    Ruglið í Atla Gíslasyni, Jóni Bjarnasyni og Daða ungbónda verður ekki til að auka virðingu þingsins eða VG. Þessir menn lýsa sig andvíga þjóðhagslegri hagræðingu af því að það stemmir ekki við þeirra pólitísku stefnu eða kemur persónulega við þá (Jón).
    Það eru akkúrat svona einstaklingar sem við þurfum að losna við af þingi.

    16.6.2010, kl. 22:43 | #

  7. Jón Jón Jónsson skrifar:

    Þóra Kristín hittir naglann lóðbeint á höfuð ... valda-kerfis fjórflokksins ... á trénuðu og veruleikafirrtu tossaballinu á Austurvelli ... hæstvirta ... háttvirta ... og það snjóar einhverju hvítu upp í nasir fáráðanna á ballinu ... titlatogið stígur þeim kannski svona til höfðanna ... en limir þeirra linir og lafa allir niður ... og án náttúrulegs blóðstreymis ... á skrípasamkundu uppvakninganna.

    Samtrygging fjórflokksins er óbreytt ... því ber að höggva hann allan niður ... öllu venjulegu fólki til blessunar ... en flokka-klafa dindlunum til búhnykks.

    Spurningin er alltaf um val í öllum ákvörðunum lífs okkar: Hagsmunir almennings eiga ætíð að vega þyngra en sérhagsmunir visnaðra dindla og visnaðra rindla. Því er það óhjákvæmilegt (eins og SJS formaður sagði fyrir rétt rúmu ári) að: \"HÉR VERÐUR UPPREISN\" ... ALMENNINGS gegn tossa-bandalagi alls ríkisvalds GULL-KÁLFANNA.

    17.6.2010, kl. 2:02 | #

  8. NNN skrifar:

    Eitt það allra dapurlegasta við alþingi eru þessar endalausu fréttir í fjölmiðlum um að þingmenn séu að vinna dag og nótt að því að semja um sín á milli hvenær þeir komast í sumarfrí. Þetta er svo aumkunarvert og lágkúrulegt að maður skammast sín fyrir hönd íslendinga að hafa þetta fólk á þingi.

    17.6.2010, kl. 11:56 | #

  9. Jón Jón Jónsson skrifar:

    Lifi vatnið, lífið sjálft!

    17. júní 2010 ... með rétt dagsins frá AGS og ESB Peking Khönunum ... franekaðra og flanegaðra og strássaðra í dóminikkuðum stál- og olíuflekk.

    \"Í vatnalögunum lifir hugmyndafræði frjálshyggjunnar um að það sé hægt að einkavæða öll gæði, setja á þau verðmiða og braska með á markaði með skelfilegum afleiðingum fyrir afkomendur. Stjórnmálamenn eiga ekki að slá slíkum málum á frest.\" (Þ.K.Á.)

    Vatnið streymir endalaust ... það flæðir ... það streymir ... og ekkert fær stöðvað framrás vatnsins ... fremur en lífsins, fremur en eldsins sem sýður í hjörtum almennings ... réttlátrar reiði almennings ... og klastursleg helgimyndasmíð þingliða og tækna fjárglæpamanna mun sökkva í þeirra eigin for-ræðis, skrif-ræðis, kjaft-ræðis feni ... í þeirra eigin mýrar-ljósum frá græðgis-vitum þeirra ... \"meðan lífsandinn höktir um nasir þeirra\".

    Lifi Lúpínan!

    Niður með trénaða, vesæla, auma og sérgóða eiginhagsmunaseggi!
    Íslenskir fjórflokks-þingmenn eru flækjufætur eigin vafninga.

    En stóra spurningin er ... Hvernig stendur á því að VG í ríkisstjórn ... og með þingræðislegan meirihluta (ásamt Júró-krötunum) ... knýr ekki fram vilja meirihluta þjóðarinnar í þessu máli?

    Halló, Halló: VG er í ríkisstjórn!

    Halló, Halló: Af hverju þarf Steingrímur Jóhann Sigfússon svona mikla þinglega sátt við xD og xB ... í þessu eina máli ... í þessu al-eina máli?

    Hvað veldur?

    Hvað veldur gólf-tusku-legri hegðun VG ... eina ferðina enn ... Hvað veldur ... sá sem ... um vélar og á heldur ... í fjármálaráðuneytinu?

    Steingrímur á að segja af sér sem formaður VG ... hann er félagslegri og umhverfissinnaðri stefnu ... til stór-skammar ... hann er blóðskömm ... hann er hægri rauður ... af blóði keisara hirðanna og slátraranna. Steingrímur Jóhann Sigfússon veit ekki hvað sósíalismi er ... bara nýfrjálshyggja ríkisbúskaps hans ... í búskussa-hætti ... og fer sem ótt og mannýgt geldnaut og traðkar niður saklausa lúpínuna ... eins og allt sé blessaðri belgjurtinni að kenna ... sem gerir ekki annað en að hvellþeyta fræi sínu á gróður lausa skalla-grímu auðn ... lítillát, ljúf og kát og litfögur.

    Um þetta allt þarf þó ekki að segja meira, en gamalt máltæki segir:

    Það þarf ekki að lasta (stjórnmála-) mennina, þeir lasta sig nóg sjálfir!

    Ég endurtek:

    Það þarf ekki að lasta (stjórnmála-) mennina, þeir lasta sig nóg sjálfir!

    Ég endurtek:

    Það þarf ekki að lasta (stjórnmála-) mennina, þeir lasta sig nóg sjálfir!

    Venjulegur og óbreyttur íslenskur almenningur: Gleðilegur 17. júní 2010.
    Við sjálf og við ein ... náum fram réttlæti og sanngirni sem við sættumst á.

    17.6.2010, kl. 12:56 | #

  10. Margretl skrifar:

    Eins og talað frá mínu hjarta. Sama máli gildir um grein í Fréttablaðinu í dag, 17. júní, en greinin er eftir Pétur Bjarnason og nefnist Vei Birgir. Þar kemur fram virðingarleysi ákveðins þingmanns fyrir þingstörfum og ræðutíma en hann (Birgir Ármannsson) er svo sem ekki einn um slíkt.

    17.6.2010, kl. 13:46 | #

  11. Jakob Þór Haraldsson skrifar:

    Eins og ávalt mjög góð grein hjá þér: \"Það er vissulega hægt að fresta gildistöku vatnalaga til þess að komast fyrr í sumarfrí. En það eykur ekki á virðingu þingsins þvert á móti.Það er uppgjöf gagnvart hugmyndafræði sem setti landið á hliðina.Í vatnalögunum lifir hugmyndafræði frjálshyggjunnar um að það sé hægt að einkavæða öll gæði, setja á þau verðmiða og braska með á markaði með skelfilegum afleiðingum fyrir afkomendur. Stjórnmálamenn eiga ekki að slá slíkum málum á frest.Stjórnmálin verða að fara snúast um hugmyndafræði, það er ekki nóg að slá bara frjálshyggjunni á frest, fram yfir kreppu.\" Hjartanlega sammála þér og því miður hefur t.d. Sjálfstæðisflokkurinn ekki haft vit á því að viðurkenna að hugmyndafræði Hannes Hólmsteinns var arfavitlaus og heilt samfélag fór á hliðina af því að \"fábjána hugmyndafræði var fylgt\"

    Stór vandamál VG & foringja VG er að hann hefur enga raunhæfar lausnir, enga framtíðarsýn og neyðist því til að fylgja áætlun AGS eftir, því hann veit ekkert hvað hann á að gera. Bara að hann hefði t.d. vit á því að \"hlusta & virkja ráðgjöf\" frá t.d. Lilju Mósesdóttur, en honum er alveg fyrirmunað að taka gáfulegar ákvarðanir og svo er hann duglegur að svíkja kosningarloforð VG, sem einnig er mikil ókostur. Verkstjórn hans & Jóhönnu hefur einnig frá byrjun verið til háborinnar skammar. Þau skötuhjú eru hluti af vandanum, en þau vilja bara ekki viðurkenna þá augljósu staðreynd.

    kv. Heilbrigð skynsemi (www.fun.blog.is)

    17.6.2010, kl. 16:28 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Frá ritstjórn

Þetta vefsvæði byggir á Eplica