Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Úr pípuhatti töframannsins

17.5.2010 15:57 Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

thora-kristin

Árni Sigfússon bæjarstjóri í Reykjanesbæ er glaður og segir það ánægjuleg tíðindi að Magma Energy eignist 98,5 prósenta hlut í HS Orku því það geti flýtt fyrir framkvæmdum í Helguvík.

Allt frá hruni hafa menn talað um að bjarghringur Íslendinga séu orkuauðlindirnar, meðan við eigum þær, séum við auðug þjóð og getum unnið okkur hratt og vel út úr vandanum. Nú er þriðja stærsta orkufyrirtæki Íslands farið úr eigu Íslendinga. Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ fagnar ákaft, maðurinn sem hefur steypt bæjarfélagi sínu í stórskuldir og selt allar helstu fasteignir þess en dregið upp úr pípuhatti sínum  eina risaverksmiðju fyrir hverjar kosningar, sem síðan hafa horfið af teikniborðinu, jafnskjótt og talið hefur verið upp úr kjörkössunum.

Hann hefur ástæðu til að fagna.

Núna reyna menn að tjalda pótemkímtjöldum fyrir hinn napra veruleika, og segja okkur ævintýri um að hræfuglarnir sem sveima yfir fjöreggi þjóðarinnar séu ekki að eignast auðlindirnar. Þeir fái einungis rétt til að nýta þær í  65 ár. Og rúsínan í pylusendanum er að ríkið fái að kaupa ef Magma fær leið á að reka sjoppuna.

Samtök atvinnulífsins fagna líka.

Samt hafa allir flokkar lagt á það áherslu að auðlindirnar séu í eigu Íslendinga. Árni Sigfússon sat sjálfur í Evrópunefnd Sjálfstæðisflokksins sem taldi það einkum mæla gegn aðild að Evrópusambandinu að útlendingar gætu komið höndum yfir fiskinn í sjónum. Sjálfur seldi hann síðan mjólkurkúna úr bæjarfélaginu gegn kúluláni sem kemur ekki til greiðslu fyrr en eftir mörg ár og greiddi götuna fyrir erlendu eignarhaldi.

Það er ömurlegt að ekki skyldi strax gripið til ráðstafanna til að koma í veg fyrir að þjóðin missti frá sér orkuauðlindir á þennan hátt.  Það var þó ljóst hvert stefndi strax í mars 2007 þegar framkvæmdanefnd um einkavæðingu, undir merkjum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, bauð út fimmtán prósenta hlut ríkisins, meinaði orkufyrirtækjum í almannaeigu þátttöku og seldi hann til Geysis Green Energy. Þar hófst hörmungarsagan þegar einkaaðilum hafði loksins tekist að slæma klónum í ,,sameiginlegar orkuauðlindir þjóðarinnar.“

Reykjanesbær selur svo hlut bæjarins til Geysis Green og fljótlega kemur í ljós að það er Magma sem fjármagnar kaupin að hluta og eignast tíu prósent. Magma keypti svo hlut OR í HS Orku en í framhaldi af því var nefnd um erlendar fjárfestingar falið að kanna lögmæti samningsins. Nefndin fékk ráðherravald í málinu en þar reyndist ekki pólitískur vilji til að koma í veg fyrir söluna. Fulltrúar Samfylkingarinnar, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks höfðu meirihluta i málinu en fulltrúar VG og Borgarahreyfingarinnar vildu láta reyna á málið fyrir dómstólum.  Það er því ljóst að ríkisstjórnarflokkarnir, Samfylkingin og Vg eru ekki samstíga að þessu leyti.

Agnar Kr. Þorsteinsson einn af föstum pennum Smugunnar rekur vel í pistli sínum í dag sorgarsögu HS Orku, frá einkavæðingu til erlends eignarhalds. Sú saga dregur skýrum dráttum þetta ofbeldisverk sem er framið gegn vilja almennings í landinu, með vitund og vilja áhrifamanna í samfélaginu sem sumir hverjir hafa þegið háar fjárhæðir eða vegtyllur úr hendi gerendanna. Niðurstaðan er sú að dótturfyrirtæki Magma Energy hefur nú klórað til sín allan hlutinn eða 98,5 prósent.

Íslenskir samverkamenn þeirra fagna ákaflega og sjá það sjálfsagt í hillingum ef Ísland verður nýlenda erlendra stórfyrirtækja. Kannski kemur þá verksmiðja fyrir Keflvíkinga og nærsveitarmenn úr pípuhatti töframannsins í Keflavík eftir allt saman.

Helmingur Sjálfstæðisflokksins virðist reiðubúin að láta lífið fyrir þann málstað að útlendingar fái ekki að veiða fisk. Á meðan er óveiddur íslenskur fiskur veðsettur í erlendum bönkum Þótt lög eigi að tryggja að orkuauðlindir séu áfram í eigu Íslendinga tryggja þau ekki að nýtingarrétturinn sé það. Nýtingarréttur til 65 ára með vilyrði um aðra eins framlengingu er ekkert annað en eignaréttur.

Ríkisstjórnin og í raun allur þingheimur verður að svara því strax hvað á að gera til að tryggja að auðlindir verði áfram í eigu þjóðarinnar allrar.

Menn verða að fara að tala tæpitungulaust um þessa hluti.

 

Senda grein

Athugasemdir (4)

  1. Pétur Örn Björnsson skrifar:

    Góð grein ... og greinandi ... að venju.

    Ég spyr mig oftar og oftar um það...hvort við séum óvirkjaðir leikendur í absúrd.
    Hvað ... og hver ... býr að tjaldabaki?
    Hver er leikstjórinn?
    Hver er hvað?
    Hvurs er hvað?
    Eru allir aðal-leikendurnir sam-meðvitaðir í frjálsum spuna?
    Fyrir hverja?

    \"Og hvað um okkur mamma?\"
    \"Við eigum hvort annað Þröstur minn\" (og við étum það sem úti frýs ... af eintómum vana bindandi vana).

    Heitir leikritið þá Happaþrenna ... eða þursa-tvenna
    ... eða Valda Fokkin Valda Fokk? Jú ... hver ... hverjir? Fyrir hverja?

    18.5.2010, kl. 14:21 | #

  2. Jakob Þór Haraldsson skrifar:

    Greinar þínar alltaf góðar & hnitmiðaðar, gott hjá þér að koma inn á t.d. \"kúlulángreiðslur - fá allt núna - hækka raforkuverð til álvera um 80% og borga skuldir síðar..lol..!\" - frábært hjá þér að tala um þesa erlendu fjárfesta sem hræfugla (RÁNfugl), eða með þínum orðum: \"..segja okkur ævintýri um að hræfuglarnir sem sveima yfir fjöreggi þjóðarinnar séu ekki að eignast auðlindirnar. Þeir fái einungis rétt til að nýta þær í 65 ár. Og rúsínan í pylusendanum er að ríkið fái að kaupa ef Magma fær leið á að reka sjoppuna.\" Ótrúlegt FALS allt saman, ríkið fær forkaupsrétt af eign sem enginn áhugi er á að selja, og ef svo ólíklega færi þá yrði það á yfirsprengdu verði..lol...stytting á nýtingar tíma úr 65 árum yfir í 25 ár skiptir litlu, því eftir 25 ár biðja þeir auðvitað um önnur 25 ár og svo önnur 25 ár o.s.frv. Arður upp á 2-4 milljarða á ári munu renna út úr okkur samfélagi og Steingrímur segist standa vaktina í þessu máli. Nei, kæri Steingrímur þú hefur algjörlega brugðist kjósendum VG - algjöra brugðist í fjölda málefna, það hálfa væri nóg - þú nýtur ekki traust, svo mikið er víst. Rétt hjá Agnari að HS-Orka er svo sanarlega sorgarsaga, vægast sagt.

    kv. Heilbrigð skynsemi (www.fun.blog.is)

    18.5.2010, kl. 20:06 | #

  3. Villi Ásgeirsson skrifar:

    Þqð besta við þessa sölu er að bæjarfélagið sem er á hausnum fjármagnar stóran hluta kaupanna. Lánar allavega fyrir honum.

    20.5.2010, kl. 8:13 | #

  4. Pétur skrifar:

    Þakka góða grein. Árni Sigfússon lofar verksmiðjum og selur auðlindir til útlanda. En samt er þetta allt Svandísi að kenna. Það er enginn sem leggur aur í Helguvík og orkan er ekki til. Samt er þetta Svandísi að kenna. Sjálfstæðisflokkurinn \"stal\" fiskinum frá fólkinu eða gaf hann til velunnara sinna sem voru fljótir að selja hann úr byggðarlaginu. Samt er þetta allt Svandísi að kenna.
    Vandamál Keflavíkur eru meiri en annarra staða á Íslandi enda er Sjálfstæðisflokkurinn stærstur þar. Fólkið virðist auðtrúa og fellur auðveldlega fyrir lýðskrumurum. Kannski á hermangið líka sinn þátt í örlögum þessa volaða bæjar. En þetta er samt allt Svandísi að kenna.

    22.5.2010, kl. 6:54 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Frá ritstjórn

Þetta vefsvæði byggir á Eplica