Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Húrra fyrir Vilhjálmi Bjarnasyni!

10.4.2010 16:54 Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

thora-kristin

Ég hugsa að Vilhjálmur Bjarnason hafi talað fyrir munn þorra almennings þegar hann neitaði að taka við mútugjöfum fyrirtækis Pálma Haraldssonar sem sjónvarpi allra landsmanna finnst við hæfi að hafa sem verðlaun í skemmtiþætti.

Það hefur mikið verið talað um fyrirgefningu og sátt í samhengi við endurreisn Íslands. Minna um sjálfsvirðingu.

Í lífinu eru orsakir og afleiðingar. Þannig lærum við og þannig skiljum við hvernig tilveran hangir saman. Þetta tvennt má ekki slíta í sundur. Sjálfsvirðing okkar fór ekki í kreppunni heldur miklu fyrr. Hún fór dvínandi þegar við veigruðum okkur við að tala hug okkar af því það var ekki vinsælt. Við vildum spila með í liðinu.  Um allt þjóðfélagið skutust menn upp á stjörnuhimininn sem sögðu eins og yfirmaðurinn hjá Glitni, ,,þú veist ég geri allt sem þú segir mér að gera.”

Og útrásarvíkingarnir voru alls staðar. Þeir keyptu stöður í háskólum, réðu yfir fjölmiðlum, bókaforlögum, jusu fé í stjórnmálaflokka og ætluðu að fjármagna hluta af innlendri dagskrárgerð Ríkissjónvarpsins.  Engin heil hugsun og óbrjáluð var óhult fyrir örlæti útrásarvíkinga og þjóna þeirra sem gerðu allt sem þeir sögðu þeim að gera.

Örfáir menn fengu þannig að leika sér með framtíð okkar allra og valda stórkostlegu tjóni.

Hvað hefur svo breyst?

Ætlum við áfram að skemmta okkur í boði þeirra og er það sjálfsagt mál að þeir komi fram og útbýti gjöfum í beinni útsendingu? Ætla þeir að halda áfram að slá sig til riddara með því að gefa matvæli til Fjölskylduhjálparinnar þegar leiktjöldin eru fallin og eyðileggingin blasir við?

Það er ótrúlegur sofandaháttur og smekkleysa af sjónvarpi sem skattgreiðendur fjármagna að geta ekki boðið almenningi uppá spurningaþátt á skjánum án þess að auglýsa upp þessa menn og fyrirtæki þeirra.

Vilhjálmur Bjarnason neitaði að taka þátt í leikritinu. Hann rétti úr bakinu fyrir hönd okkar allra. Hann sýnir þar með sjónvarpi allra landsmanna að það er ekki alltaf sama hvaðan gott kemur.

 

 

 

 

Senda grein

Athugasemdir (9)

  1. Ásdís Bragadóttir skrifar:

    Þakka þér Þóra Kristín fyrir greinina. Hér eru orð í tíma töluð!

    10.4.2010, kl. 17:18 | #

  2. Jakob Þór Haraldsson skrifar:

    Mjög góð grein hjá þér, tek undir alla þína gagnrýni, sérstaklega þegar þú segir m.a.: \"Örfáir menn fengu þannig að leika sér með framtíð okkar allra og valda stórkostlegu tjóni.\" Skömm þeirra (siðblindra viðskipta- & stjórnmálamanna) er ævarandi, síðan endurskoðendur, fjölmiðlafólk, háskólafólkið og flest allir sem voru \"meðvirkir & spilluðu með auðRÓNUNUM að fara í smá sjálfsskoðun\" því án þeirra þátttöku hefðu þessar SVIKAmyllur aldrei fengið að rúla jafn lengi. Vonandi ber okkur sem þjóð GÆFA til að þroskast, læra og taka upp breytt og vandaðri vinnubrögð, ekki veitir af.

    kv. Heilbrigð skynsemi (www.fun.blog.is)

    10.4.2010, kl. 18:03 | #

  3. Guðgeir Kristmundsson skrifar:

    Mjög góð grein.

    10.4.2010, kl. 18:30 | #

  4. Bjarni Þorsteinsson skrifar:

    Vilhjálmur gerði þarna skoðanir sínar - og fjölmargra annarra - sýnilegar með eftirminnilegri athöfn sem segir í sjálfu sér meira en mörg orð. Við höfum líka fjölmörg tækifæri á hverjum degi til að sýna hug okkar í verki. Við getum sýnt viðnám gegn þessari óbærilegu stöðu sem hefur myndast með því að hætta að skipta við fyrirtæki hina meintu stórglæpamanna þegar þess er nokkur kostur. Ef dómstólarnir sýna fram á sakleysi þeirra geta þeir sem því trúa svo tekið upp viðskipti við þá á ný.

    10.4.2010, kl. 20:58 | #

  5. Sigrún Sveinsdóttir skrifar:

    Þakka þér fyrir þessa grein Þóra Kristín. Þú kemur orðum að því sem við erum að hugsa. Að leyfa þeim halda áfram að slá sig til riddara með gjöfum til Fjölskylduhjálparinnar er háðung. Vilhjálmur Bjarnason er maður sem stendur við sín orð og sannfæringu og mættu fleiri taka hann sér til fyrirmyndar...

    11.4.2010, kl. 11:46 | #

  6. Guðjón Jensson skrifar:

    Vilhjálm hefi eg þekkt í nálægt hálfa öld bæði sem nágrannar í Hlíðunum og gegnum skóla. Hann hefur alltaf haft sannfæringu í ríkara mæli en flestir samferðamenn okkar. Hann hefur ætíð komið hreint og beint fram, sýnt af sér hreinskilni og oft það mikla að sumum finnst nóg um. Vilhjálmur er mjög skjótur að gera greinarmun á réttu og röngu og hefur alltaf verið tilbúinn að standa við ákvarðanir sínar.

    Öðru máli gegnir um þá sem komu þessum ósköpum af stað. Þeir voru svo siðferðislega blindnir að þeim fannst sjálfsagt að afhenda banka og aðra opinbera fjármuni til aðila sem ekki hafa reynst borgunarmenn fyrir því. Á sama tíma var bindisskylda banka afnumin og sama má segja um hátekjuskatt. Einkennilegt er að þetta bar upp á svipaðan tíma og Öryrkjabandalagið varð í tvígang að höfða mál gegn ríkinu um túlkun á rétti okkar smæstu og vanmegnustu í samfélaginu.

    Sumir vilja tala um fyrirgefningu gagnvart þeim sem báru ábyrgð á bankahruninu. Við þá má segja eftirfarandi: Hafa þeir sem ollu bankahruninu með fjárglæfrum sínum og glannaskap sýnt iðrun beðið þjóðina fyrirgefningar? hafa þeir reynt að bæta fyrir afglöp sín og skilað þýfinu aftur sem þeir höfðu á brott með sér til skattaskjóla? Hafa fulltrúar þessara afla kappkostað að leysa deiluna um Icesave? Neineinei... ekkert hafa þessir þokkapiltar gert nokkurn skapaðan hlut í þessa átt.

    Kristin trú gengur út á það að skilyrði að unnt sé að veita fyrirgefningu er að viðkomandi hafi sýnt iðrun og beðið um slíka fyrirgefningu jafnframt að bæta fyrir það sem hann hefur framið rangt í framkomu sinni. Það er því gjörsamlega út í hött þegar ekkert af þessum skilyrðum hefur verið uppfyllt.

    Þeir virðast hafa sýnt af sér ótrúlega einbeittan brotavilja og fyrir það byggist væntanlegur refsigrundvöllur.

    Við gerum okkur öll grein fyrir því Íslendingar að sjaldan hafa jafnfáir valdið jafnmörgum jafnmikinn skaða og þessir útrásarvíkingar og þeir stjórnmálamenn sem við málið eru riðnir.

    Guðjón Jensson
    Mosfellsbæ

    11.4.2010, kl. 15:44 | #

  7. Pétur Örn Björnsson skrifar:

    Mjög góð grein hjá Þóru Kristínu og góðar athugasemdir. Maður er byrjaður að hafa trú á, að við sem þjóð finnum okkar gamla góða takt, fyrr en síðar.

    Hef hlustað á Free Bird með Lynyrd Skynyrd nokkrum sinnum í dag. Mér finnst taktur þess lags vera svipaður okkar gamla klassíska íslenska takti:
    Hreinn, ljóðrænn, heiðarlegur, stoltur og sannur. (Kannski er ég of bjartsýnn?)

    12.4.2010, kl. 0:55 | #

  8. Ágúst Valves Jóhannesson skrifar:

    Vilhjálmur Bjarnason mælti með að taka lán í svissneskum frönkum en í dag segir hann þau ólögleg. Ég treysti honum ekki.

    12.4.2010, kl. 3:19 | #

  9. Halldór Ásgeirsson skrifar:

    Mér finnst greinin góð. Vilhjálmur Bjarnason er sá sem stendur upp úr fjöldanum og lætur ekki aðra kúga sig.
    Það hefur ekki farið mikið fyrir því í umræðunni frá hruninu, að háskólasamfélagið í landinu, á þá aðalega sá aragrúi hagfræði- og viðskiptadeilda, sem starfar í hinum mörgu svokölluðu háskólum sem hafa sprottið upp eins og gorkúlur á undanförnum árum, hafa hingað til ekki axlað sína ábyrgð á hruninu. Það eru mikið til sömu menn sem sitja þar á kennarastólum, sem kenndu þeim sem stýrðu hinu vonlausa hagkerfi í strand. Eg er hræddur um að ef skipstjórnarskóli væri að útskrifa í tonna tali skipstjóra og stýrimenn, sem væru öðrum fremri í því að stranda skipum, eða það sykki óðlilega mörg skip undir þeirra stjórn, þá væri gripið í taumana og sett á laggirnar ransóknarnefnd til að athuga hvað væri verið að kenna þeim.
    Einhvern veginn finnst mér að það þurfi að taka til í þessum viðskipta- og hagrfæði ranni líka.

    12.4.2010, kl. 9:13 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Frá ritstjórn

Þetta vefsvæði byggir á Eplica