Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010
Frá ritstjórn

Til Evrópu með hvorki né

26.6.2010 Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

thora-kristin

Fyrir landsfund Sjálfstæðisflokksins fóru nokkrir ESB stuðningsmenn hamförum og hótuðu klofningi ef flokkurinn samþykkti að vinna að því að aðildarviðræðum við ESB yrði hætt. Auðvitað standa þeir ekki við stóru orðin. Andstæðingar ESB hafa fyrir löngu náð öllum völdum í flokknum og hinir hafa tæpast málfrelsi.

Báðir frambjóðendur til formanns kepptust við að níða niður aðildarviðræðurnar. Pétur Blöndal sagðist ekki ætla til Brussel á hnjánum í gegnum hundalúguna. Orðalagið er nánast orðrétt fengið úr ræðu formanns LÍÚ fyrir nokkrum árum.

Fyrir flokksráðsfund VG var lögð fram tillaga um að aðildarviðræðum yrði hætt en samþykkt hennar hefði ugglaust valdið stjórnarslitum. Innan VG er það þó ekki afstaðan til Evrópusambandsins sem tekist er á um. VG er á móti aðild að Evrópusambandinu og flokkurinn hefur ekki breytt stefnu sinni hvað það varðar. Örfáir einstaklingar innan VG eru annarrar skoðunar líkt og örfáir einstaklingar innan Samfylkingarinnar eru á móti aðild. Það var hinsvegar ein forsenda fyrir stjórnarsamstarfi að farið yrði í aðildarviðræður en niðurstaða þeirra yrði lögð í dóm kjósenda. Tekist er á um hvort það sé réttmætt að halda aðildarviðræðum áfram við þær aðstæður sem nú eru uppi þegar yfirgnæfandi meirihluti fólks er á móti því.

Ástæðan fyrir því að þetta veldur svona miklum titringi er að líklega er ekki lengur þingmeirihluti fyrir aðildarviðræðum. Það er sumsé ekki þingmeirihluti og ekki þjóðarvilji fyrir þessu baráttumáli Samfylkingarinnar.

Evrópuumræðan hefur verið keyrð áfram af gríðarlegum hagsmunum og er löngu komin yfir endimörk skynseminnar.  ESB andstæðingar hafa náð undir sig Morgunblaðinu og ESB sinnar innan Sjálfstæðisflokksins ráða Fréttablaðinu. Umræðan er tilfinningaþrungin og heimskuleg, þar takast á brigsl um landráð, föðurlandssvik og óhróður um fólk eins og skrímsladeildin er fræg fyrir og stórkostleg útópía um efnahagslegt kraftaverk sem Samfylkingin málar á vegginn.

Ég hef líkt og margir, hvorki verið með eða á móti ESB. Ég var fylgjandi aðildarviðræðum á sínum tíma til að fá staðreyndir uppá borðið um hvernig yrði farið með íslenska hagsmuni í slíku samstarfi að því tilskildu að niðurstaðan færi í þjóðaratkvæði enda taldi ég að þjóðin ætti rétt á að fá að taka upplýsta ákvörðun í svo stóru máli.

Ég er viss um að slík afstaða á vel samleið með þeim andstæðingum ESB sem kalla á aukið lýðræði við ákvarðanir og ég vil gjarnan aukna umræðu um hvernig ESB beitir aflsmunum gegn hagsmunum fátækra ríkja. Hún á hinsvegar enga samleið með ESB andstæðingum sem reka sína baráttu í krafti beinna peningalegra hagsmuna og beita skoðanakúgun og rógi við hvert tækifæri sem býðst.

Samstarf þessara afla er mér hrein ráðgáta.

Samfylkingin hefur skilgreint sig sem Evrópuflokk og reiðir sig nú algerlega á VG til að halda þessum aðildarviðræðum til streitu. Enginn annar flokkur er í sjónmáli til að taka við keflinu hverfi VG úr ríkisstjórn. Það ætti að setja Vinstri græn í nýja stöðu í stjórnarsamstarfinu, meðan það varir og greiða fyrir róttækari áherslum flokksins. VG er til að mynda umhverfisverndarflokkur en Samfylkingin er það ekki. Hvernig væri að VG færi að reiða sig algerlega á Samfylkinguna til að koma þeim málum áfram. Hvað á að gera og hversu langt á að ganga til að tryggja það að auðlindir okkar verði í eigu þjóðarinnar allrar? Skemmst er að minnast Magma Energy og HS orku en þar skorti algerlega samhljóm milli stjórnarflokkanna. Hvað verður með virkjanir í neðri Þjórsá?

Það má ekki fara svo að stuðningsmenn VG styðji Samfylkinguna hálfa leið til Brussel en sitji svo uppi með sjálfir að vera hvorki vinstri né grænir.

Senda grein


Eldri leiðarar

asgeir_h_ingolfsson

Fótbolti og jöfnuður - Ásgeir H Ingólfsson

„Þannig er þetta löngu orðin klisja, fátæki götustrákurinn sem brýst úr örbirgð í ríkidæmi sökum knattfimi.“

 
thora-kristin

Þjóðstjórn um Gamla Ísland - Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

Það væri eflaust hægt að mynda þjóðstjórn um ýmsar áherslur þessarar ríkisstjórnar og skapa þannig vinnufrið. Þær áherslur miða einkum að því að endureisa úr rústum efnahagshrunsins þær stofnanir sem fyrir voru í nánast óbreyttri mynd. Allt annað yrði þá útundan.

 

Allir leiðarar




Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica