Lítill þjóðernisflokkur sem kallar sig Rigshushällarna býður fram stjörnum prýddan lista í sænsku þingkosningunum. Einn frambjóðenda listans er prinsinn Daníel, Mona Sahlin formaður sósíaldemókratanna er einnig á listanum, sem og Fredrik Reinfeldt. forsætisráðherra Þá er Madeleine prinsessa í framboði og fleiri nafntogaðir einstaklingar.
Formaður flokksins, Lennart Nyberg, er einnig formaður í þjóðernishreyfingu Svíþjóðar og á stefnuskránni er að afnema alla skatta, styrkja varnir landsins og koma í veg fyrir að útlendingar komist inn í landið. ,, Hver sem er stofnað flokk í aðdraganda kosninga og tilgreint hvaða frambjóðendur sem er á seðilinn án þess að fá samþykki þeirra sem um ræðir samkvæmt sænskum reglum um persónukjör.,“ segir Drífa Snædal sem er búsett í Svíþjóð.
Lesa meira
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra baðst afsökunar á því á Rás tvö í morgun að hlutfall milli kynjanna væri ekki lengur jafnt í ríkisstjórn eftir ráðherraskiptin í gær. Steingrímur lofaði að úr þessu yrði bætt eins fljótt og auðið eri. Tvær konur og einn karl hurfu úr ríkisstjórn í gær og inn komu tveir karlar. Guðbjartur Hannesson, nýr ráðherra var fyrsti kostur forsætisráðherra en aðrir kostir voru einnig skoðaðir með tilliti til kynjaskiptingarinnar. Tíu ráðherrar eru í ríkisstjórn, 6 karlar, þrír úr hvorum flokki og 4 konur, tvær úr hvorum flokki.
Lesa meira
Steinsmugan hlakkar ákaflega til að fara á ljósanótt í Reykjanesbæ. Stóra spurningin er hvort Árni Sigfússon hafi borgað rafmagnsreikninginn eða hvort Magma Energy slái út rafmagninu? Nei, ætli fyrirtækið sýni bæjarstjóranum ekki góðvild í ljósi þess hversu vel vináttan við hann hefur gefið af sér? Ekki þar fyrir að bærinn þarf að spara og hefur kannski ekki efni á allri þessari ljósadýrð.
Nei! það er alltaf hægt að slá út götuljósin á umferðargötum bæjarins í vetur eða kenna við grútarlampa í grunnskólunum þegar mesta fjölmiðlafárið vegna fjárhagsstöðu bæjarins er gengið yfir. En ætti ekki Árni að slökkva öll þessi ljós og spara rafmagnið fyrir nýja álverið? Þar er komin veigamikil og karlmannleg ástæða til að snúa dæminu við. Árni er maður ráðagóður og gæti markaðssett ljósahátíðina upp á nýtt. Steinsmugan stingur upp á hátíðinni Svartnætti í Reykjanesbæ. Höldumst í hendur og segjum hvert öðru draugasögur.
Lesa meiraÖgmundur Jónasson segir að þátttaka í ríkisstjórninni leggist afar vel í sig. Ríkisstjórnin sé að ganga í endurnýjun lífdaga og þessar breytingar treysti samstöðuna innan þingsins.Hann ætlar að gefa sér meira en tíu mínútur í embætti til að leggja upp nýja stefnumörkun en segist þó vera á móti forvirkum rannsóknarheimildum fyrir lögregluna. Ummæli Rögnu Árnadóttur hafi verið stórlega oftúlkuð um það mál en hann telur hana hafa unnið gott starf.
Lesa meira
Kristján Möller samgönguráðherra gaf fyrirtækinu ECA leyfi til að skrá herþotur á Keflavíkurflugvelli rétt áður en hann lét af embætti sem ráðherra. Ráðherrum VG brá í brún þegar fram kom í Ríkisútvarpinu að þetta hefði verið ákveðið við ríkisstjórnarborðið. Það mun ekki vera.
Í frétt Ríkisútvarpsins sagði: ,,Samkvæmt heimildum fréttastofu náðist samkomulag fyrir nokkrum dögum í ríkisstjórn um að hleypa þessu verkefni áfram. Það samkomulag er eitt af síðustu verkum Kristjáns Möllers samgönguráðherra í embætti.“ Ráðherrar VG kannast ekkert við slíkt samkomulag en þar eru menn undrandi vegna fréttarinnar.
Lesa meira,,Mér er efst í huga auðmýkt gagnvart þessu gríðarlega stóra verkefni, sagði Guðbjartur Hannesson verðandi velferðarráðherra. ,,Það er spennandi að eiga að gæta velferðar og um leið taka þátt í því að stilla upp samfélaginu á nýjan leik. Þetta er ögrun.“
Hann vildi ekki meina að hörð átök hefðu verið um ráðherraskiptin í flokknum. ,,Þetta var samþykkt einróma á þingflokksfundi og nánast einróma á flokkstjórnarfundi. Sjálfur vissi ég ekki um endanlega niðurstöðu fyrr en í morgun.“
Lesa meiraFlokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar hófst klukkan tíu á Hótel Loftleiðum en þar kynnti Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra þá ákvörðun sína að taka Guðbjart Hannesson inn í ríkisstjórnina og setja hann yfir heilbrigðisráðuneytið og félags og tryggingamálaráðuneytið. Guðbjartur mun stýra svokölluðu velferðarráðuneyti þegar það verður til Kristján Möller hættir sem samgönguráðherra og Árni Páll Árnason verður settur yfir efnahags og viðskiptaráðuneytið. Hjá VG verður Ögmundur dóms og mannréttindamálaráðherra og samgönguráðgerra. Þessi tvö ráðuneyti falla undir nýtt Innanríkisráðuneyti sem hann mun stýra. Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra víkur úr ríkisstjórn.
Lesa meira
Það þykir ekki tiltökumál lengur hvort ríkisstjórnin sé að springa, það er meira svona eins og að spyrja, hvað er í matinn? Og það þykir heldur ekki tiltökumál að krefjast opinberrar afsökunarbeiðni þótt sjaldnast fylgir hugur máli. Maður fær á tilfinninguna að menn yrðu ánægðir með að fá hvaða afsökunarbeiðni sem er, að ráðherrann viðurkenndi að hafa ekki burstað í sér tennurnar um morguninn eða gleymt að borga í stæði.
Lesa meira
Til að kóróna allt það sem á Árna hvílir þá stefnir allt í það að veðsett land sem braskarar úr Reykjanesbæ ætluðu að byggja Motor-Park á, endi svo á herðum Árna með einum milljarði í skuld til handa skattborgurum Reykjanesbæjar sem auðfúsir eru ávallt til að styðja sinn bæjarstjóra meðal annars með endurkjöri og nú skiptingu skuldanna á milli sín.
Lesa meira
Það er eðlilegt að einhverjir Samfylkingarmenn séu ósáttir við að Ögmundur verði ráðherra aftur í ljósi sumrar tjáningar hans seinustu mánuði. Hitt er varla umdeilt að á þensluárunum sem leiddu til hrunsins var Ögmundur einn þeirra fáu sem var óhræddur að gagnrýna og hafði þá rétt fyrir sér.
Lesa meira
Mikið vatn hefur runnið til sjávar í luftgítarbransanum síðan Johnny Triumph heillaði íslensk ungmenni með óbærilega kynferðislegum mjaðmahreyfingum sínum um miðjan níunda áratuginn. Mörg lick hafa verið leikin, mörg riff og mikið strömm. Luftgítarleikarar dagsins eru áræðnari, grófari, kjánalegri, fimari, og sterkari.
Lesa meiraGerður Kristný hlaut í morgun Barna-og unglingabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins 2010 fyrir skáldsöguna Garðurinn. Verðlaunin eru einn komma tvær milljónir íslenskra króna og voru afhent við við hátíðlega athöfn í Alþingishúsinu. Þetta er í fimmta skipti sem verðlaunin eru veitt en þeim er úthlutað annað hvert ár.
Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars að Garðurinn sé ,,unglingabók, samtímasaga og fortíðarsaga, skrifuð af fagmennsku og sjaldgæfum glæsibrag."
Lesa meira
Eitthvað hefur Gevalia- kaffið hjá sérstökum saksóknara farið illa í Sigurð Einarsson, fyrrverandi stjórnarformann Kaupþings en hann fer hörðum orðum um gestgjafa sinn. Sigurður vill að opinber rannsókn fari fram á vinnulagi saksóknarans. Hann segir rannsókn hans bera vott um óskiljanlegan yfirgang, ofbeldi og valdníðslu.
Steinsmugan fagnar þeirri rannsókn og hvetur sérstakan Sigurð til að standa mynduglega að henni. Flytja má heim fé frá aflandseyjum til að standa straum af kostnaði og nefndina mætti skipa af sérstöku trúnaðarráði útrásarvíkinga. Fjölmiðlar munu örugglega gera henni góð skil og hver veit nema Sheik Al Thani geti séð um samskipti við þá.
Að sama skapi fór hljóðlátur sigurhrollur um Steinsmuguna þegar Indefence samtökin tóku við frelsisverðlaunum Kjartans Gunnarssonar í Valhöll.
Landinn er loks að rísa!
Lesa meira
Er það sjálfgefið að endurgreiða öll lán án tillits til afleiðinganna. Í tilfelli Pakistana erum við að tala um dauðsföll venjulegra manneskja sem eiga sína framtíðardrauma eins og ég og þú. Eiga lánadrottnar alltaf að fá sitt en almenningur millifærir fé frá þeim sem eru aflögufærir til þeirra sem eru í neyð?
Lesa meira
Tilfinningar Þingeyinga til landsins og náttúrunar voru ekki nýsprottnar og ekki heldur afstaðan til miðstýrðs valds, en tíðarandinn var opinn fyrir andstöðu við vald og nýjum hugmyndum um náttúruvernd. Gleymum því ekki að áhrif 68 hugsunarinnar sveif líka yfir vötnum hér norður í landi.
Lesa meira